Á forsíðu morgunblaðsins í dag er sagt frá stofnun og starfsemi Stafnsins. Mikill áhugi er fyrir félaginu og margar fyrirspurnir verið sendar inn.Undanfarna daga hefur verið unnið að því að auðvelda sjósetningu og landtöku á bátunum. Smíðaðar hafa verið brautir sem bátarnir eru látnir renna eftir. Einnig eru í smíðum tveir vagnar sem gera sjósetningu og landtöku aðgengilega fyrir alla. En eins og lesa má í grein morgunblaðsins þá geta flestar áhafnir borið bátin á milli sín styttri vegalengdir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli