28.5.08

Stjórn félagsins á sinni fyrstu æfingu.

Meirihluti stjórnar félagsins tók sína fyrstu æfingu nú kvöldandvaranum ásamt þremur vöskum piltum sem tóku hressilega á árunum. Nú æfir sveitin tvisvar í viku, og virðist það ætla að ganga vel að fullmanna bátinn. Stofnendur félagsins hafa verið iðnir við kolann í róðravélunum síðustu vikurnar og það skilar sér í fínu úthaldi.

Nú er bara vonandi að fleiri hópar komi til og stofni róðrasveitir og hægt verði að blása til fleiri róðrakeppna í sumar.

Kvöldæfing

Nokkur lið voru á æfingum í kvöld. Lag er komið á sjósetningu og landtöku á bátunum og gengur það allt orðið nokkuð vel fyrir sig. Leirvíkingur lak nokkuð hressilega hjá Eyþóri og félögum en það kom ekki að sök og réru þeir í rúman klukkutíma í suðaustan andvara úti á Skerjafirðinum.

27.5.08

Hátíð Hafsins

Hátíð hafsins er á nú á komandi helgi. Mikið verður um að vera í reykjavíkurhöfn bæði laugardag og sunnudag. Lið sem æfa nú kappróður í Nauthólsvíkinni munu etja kappi á sunnudaginn kl. 15:00. Við hvetjum alla sem hafa heimangengt að mæta niður á höfn og njóta alls þess sem í boði er. Hátíð hafsins er skipulögð af Sjómannadagsráði, Höfuðborgarstofu og Faxaflóahöfnum.
dagskrá hátíðarinnar er að finna á heimasíðu hennar :


26.5.08

Umfjöllun um Stafnið í Morgunblaðinu

Á forsíðu morgunblaðsins í dag er sagt frá stofnun og starfsemi Stafnsins. Mikill áhugi er fyrir félaginu og margar fyrirspurnir verið sendar inn.

Undanfarna daga hefur verið unnið að því að auðvelda sjósetningu og landtöku á bátunum. Smíðaðar hafa verið brautir sem bátarnir eru látnir renna eftir. Einnig eru í smíðum tveir vagnar sem gera sjósetningu og landtöku aðgengilega fyrir alla. En eins og lesa má í grein morgunblaðsins þá geta flestar áhafnir borið bátin á milli sín styttri vegalengdir.

21.5.08

Æfingatöflur á vefnum.

Nú eru komnar æfingatöflur á netið. Þar er hægt að skrá æfingatíma fyrir áhafnir. Liðsstjórar eru ábyrgir fyrir að láta vita af breytingum. Það er hægt með því að skilja eftir skilaboð á stafnid@internet.is.

Liðsstjórar skrái æfingatíma á netinu með því að velja viðkomandi dag og tíma. - Muna eftir að skrá nafn liðs, liðsstjóra og símanúmer.

Æfingatöflurnar eru á tenglalistanum til hægri á síðunni.

Hér eru æfingatöflurnar. Hafið samband í síma 698 5216 ef einhverjar spurningar vakna.
Kv. Guðmundur

http://www.my.calendars.net/leirvikingur

http://www.my.calendars.net/gammur

18.5.08

Havnar Róðrafélag.

Havnar Róðrafélag í Þórshöfn í Færeyjum verður vinafélag Stafnsins, og væntum við mikils af þeim vinskap. Félagið er það stærsta í Færeyjum og hefur meðal annars innan sinna raða ólympíumeistara í róðri frá ÓL í Aþenu 2004, sem sér um þjálfun hjá einni áhöfninni.

Á heimasíðu þeirra er hægt að skoða myndir frá keppnum þar í landi og finna ýmsan fróðleik um íþróttina. Undir "drekavarpið" er svo hægt að skoða myndskeið frá fjölmörgum mótum. Þar sést vel hvernig íþrótt þetta er og hvernig að henni er staðið.
Nú í byrjun júní byrjar róðradeildin hjá þeim í Færeyjum og eru 82 lið skráð til keppni í 6, 8 0g 10 -æringum, í þremur aldursflokkum í karla og kvennaflokki. Deildinni lýkur svo á Ólafsvökunni síðustu helgina í júlí.

Við hvetjum fólk til að kynna sér félagið og starfsemi þess.

Stjórnarmenn meta aðstæður.

Hér eru tveir af stjórnarmönum félagsins þeir Sverrir Björgvinsson og Gústaf Ómarsson að meta aðstæður í Nauthólsvíkinni. Í bakgrunni er Gammur og í forgrunni er "Leirvíkingur"

Fyrsta æfing Stokkana

Lið skipað færeyskum róðrasnilingum sem búa hér á Íslandi tók fyrstu æfingu tímabilsins á föstudaginn var. Það reyndi á útsjónarsemi viðstaddra að sjósetja bátinn, en æft var á Gammi. Það er útséð að gera verður varanlegar ráðstafnair í sambandi við sjósetningu og landtöku bátanna. Bátarnir eru viðkvæmir og því er mikilvægt að meðhöndlun á þeim sé ekki þannig að þeim stafi hætta af.

Stokkarnir réru út á firðinum í köldu og gráu föstudagskvöldinu. Áhafnarmeðlimir eru eldri en tvævetur þegar kemur að róðramálum og geta kennt okkur hinum eitt og annað í sambandi við meðhöndlun á bátum og fylgihlutum.

Æfingatafla fyrir bláa bátinn

Hér kemur æfingatafla fyrir bláa bátinn. Báturinn er nafnlaus en færeyingar sem róið hafa áður til sjómannadagsróðurs segja bátinn heita "Leirvíkingur". Það er ágætt nafn og ef eigendur bátanna hafa eingar mótbárur gagnvart þeirri nafngift þá er einsýnt að báturinn beri það nafn.

16.5.08

Æfingatímar.

Það auðveldar allt utanumhald ef þær áhafnir sem ætla að æfa fram að sjómannadegi og/eða að ganga í félagið reyni af fremsta megni að koma sér saman um fasta æfingatíma. Þannig verði það tryggt að áhafnir gangi að bátunum vísum og engir árekstrar verði á milli áhafna um not af bátunum.
Eins og áður hefur verið sagt þá mun Gammurin verða notaður til 1 klst æfinga en (nafnlausi) blái báturinn til 1 og 1/2 klst æfinga.

Björgunarvesti.

Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnafjarðar hefur látið okkur hafa til afnota björgunarvesti sem mælst er til að allar áhafnir noti við æfingar. Vestin eru uppblásanleg og létt og fyrirferðalítil.

14.5.08

Æfingatafla fyrir Gamminn

Gammur er annar af tveimur bátum sem sjómannadagsráð lagði fram til félagsins. Hér kemur æfingataflan fyrir hann. Vinsamlegast hafið samband við Guðmund Arngrímsson í síma 698 5216 eða sendið póst á stafnið@internet.is og pantið tíma. Jafnóðum og æfingatími er frátekin mun því verða bætt á töfluna ásamt uppl. um liðstjóra eða símanúmer viðkomandi.

Æfingatímar

Bátarnir eru staðsettir í Nauthólsvík, við siglingaklúbbinn Siglunes. Til að geta komist út að róa þurfa liðin að skipa með sér liðsstjóra/formann, sem verður ábyrgðarmaður liðsins gagnvart félaginu. Liðsstjórinn fær lykla að húsnæðisaðstöðu félagsins, sem og lykla að lásum sem eru á bátunum sjálfum.
Bátarnir verða sjósettir á hlunnum og er mikilvægt að í lok æfingar eða í lok dags að bátunum sé vel fyrir komið og tryggilega frá þeim gengið. Á milli æfinga er mikilvægt að báturinn sé tekin á þurrt ef liðin skiptast ekki beint á bátum við lok æfingatíma.
Þegar liðstjóri hefur fengið lyklavöld sjá þeir um æfingar sinna áhafna gagnvart félaginu. Þar sem einungis tveir bátar eru hjá félaginu næstu vikurnar verður að skipa málum þannig að gerð er æfingatafla fyrir alla vikuna. Hver æfingartími er annarsvegar 60 mínútur og hinsvegar 90 mínútur, sem skiptist á bátana tvo. Eftirspurn eftir æfingartímum verður að leiða í ljós hvort nauðsynlegt reynist að koma á kvóta eða takmarka ásókn í vinsæla æfingatíma.

Af gefnu tilefni er vert að minnast á það að öll meðferð áfengis og tóbaks er bönnuð innan ramma félagsins. Mikilvægt er að virða þessa reglu, því að á svæðinu fer fram mikið unglinga- og æskulýðsstarf.

Með kveðju

13.5.08

STAFNIÐ RÓÐRAFÉLAG hefur tekið til starfa

Þriðjudag þ 6. maí fékk STAFNIÐ Róðrafélag afhent til afnota 2 kappróðrabáta frá sjómannadagsráði. Sá atburður markar ákveðin þáttaskil í því undirbúningsstarfi sem stjórn félagsins hefur staðið að síðan í haust. Bátarnir eru sexæringar, nýlega smíðaðir og í topp ástandi. Aðstaðan sem félagið hefur fengið úthlutað hjá Reykjavíkurborg er í Nauthólsvík, nánar tiltekið við Siglunes. Þar mun félagið deila húsakostum með Hjólreiðafélagi reykjavíkur og ekki að efa að sú sambúð verði gæfurík. Bátarnir eru á kerrum og bátunum verður að slaka niður rennu eða á hlunnum niður í sjó. Mikilvægt er svo að bátarnir séu teknir upp eftir hverja æfingu eða í að minnsta kosti í lok dags. Við bjóðum alla velkomna í félagið, fyrst um sinn verður ekki innheimt félagsgjald því framundan er skipulagsstarf sem við vonum að sem flestir komi að.

Félagið hefur gert munnlegan samstarfssamnig við Havnar róðrafélag í Þórshöfn og væntum við mikils af þeim samskiptum við frændur okkar færeyinga. Á næstu dögum verður bætt við meira efni inn á síðuna, svo sem æfingatöflu, upplýsingar um öryggis og umgengnismál, um íþróttina sjálfa o.s.frv.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 698 5216 eða í netfangið stafnid@internet.is
Með Kveðju.
Guðmundur Hrafn Arngrímsson