Havnar Róðrafélag í Þórshöfn í Færeyjum verður vinafélag Stafnsins, og væntum við mikils af þeim vinskap. Félagið er það stærsta í Færeyjum og hefur meðal annars innan sinna raða ólympíumeistara í róðri frá ÓL í Aþenu 2004, sem sér um þjálfun hjá einni áhöfninni.Á heimasíðu þeirra er hægt að skoða myndir frá keppnum þar í landi og finna ýmsan fróðleik um íþróttina. Undir "drekavarpið" er svo hægt að skoða myndskeið frá fjölmörgum mótum. Þar sést vel hvernig íþrótt þetta er og hvernig að henni er staðið.
Nú í byrjun júní byrjar róðradeildin hjá þeim í Færeyjum og eru 82 lið skráð til keppni í 6, 8 0g 10 -æringum, í þremur aldursflokkum í karla og kvennaflokki. Deildinni lýkur svo á Ólafsvökunni síðustu helgina í júlí.
Heimasíða Havnar Róðrafélags.
Við hvetjum fólk til að kynna sér félagið og starfsemi þess.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli