STAFNINN RÓÐRAFÉLAG hóf starfsemi sína um miðjan maí 2008. Tilgangur félagsins er að vera umgjörð utan um róður á færeyskum kappróðrabátum. Markmiðið er að breiða út íþróttina og skapa gott umhverfi fyrir þá sem vilja æfa og keppa í róðri á þessum tegundum báta. Aðsetur félagsins er í Nauthólsvík, við siglingaklúbbin Siglunes. Stjórn félagsins skipa: Guðmundur H. Arngrímsson Sverrir Björgvinsson Gústaf Ómarsson Hörður Sigurjónsson Allir eru velkomnir í félagið og áhugasamir geta haft samband við stjórn félagsins á netfangið stafnid@internet.is
Engin ummæli:
Skrifa ummæli